Friday, August 17, 2007

 

Lélegt hjá Bylgjunni/Nings

Ókei, ég veit að ég er að reyna að vera jákvæð, en ég bara get ekki sleppt því að skrifa um þennan vinning sem ég fékk í sumarleik Bylgjunnar og Nings. Þegar Ívar Guðmundsson talaði við mig "í beinni" sagði hann að ég hefði unnið borgarferð fyrir tvo til Evrópu. Borgarferð er skilgreind á heimasíðu Icelandair sem pakkaferð til borgar í Evrópu, með hóteli og flugi.
Þegar ég fékk gjafabréfið í hendurnar stendur á því að ég hafi unnið flugfar fyrir tvo til e-s áfangastaðar í Evrópu OG að flugvallaskattar og gjöld séu ekki innfalin.

Ég gat nú ekki annað en farið að hlæja þegar ég sá þetta. Það kemur sem sagt til með að kosta mig heilan helling að nota þennan vinning. Ég ætti kannski að hringja í Flugleiði og athuga hvort ég fái nú ekki örugglega far til baka.

Æ þetta var bara eitthvað svo hallærislegt að ég varð að deila þessu.

Comments:
ó já, þetta er hallærislegt. Ef það á að gefa eitthvað þá á að gefa það alminnilega
 
Ekkert hótel sem sagt? Æ æ. Lummó.

Það er samt hægt að finna ódýr hótel á netinu. Ég vona að þú getir nýtt þér vinninginn.
 
hei þú ferð að sjálfsögðu lengra með þetta - í blöðin - sendu póst á fréttablaðið eða blaðið eða moggann :)
 
hei auðvitað talarðu við neytendastofu - og hmmm þetta var ég sem kom með athugasemdina hérna fyrir ofan með errinu ehe ;)
 
Ég hugsa að ég eigi nú eftir að reyna að nota þennan vinning og borga þá flugvallaskatta og gjöld og hótel líka.

Ég efast um að ég fari með þetta í blöðin, þetta er nú varla svo merkilegt. Þeir hefðu samt átt að tala um þetta sem flug fyrir tvo til Evrópu, þegar þeir auglýstu þetta, ekki borgarferð.
 
Afar púkó!
 
heh, slappt hjá þeim.

Tékkaðu svo endilega á tripadvisor.com áður en þú bókar hótelið í London...
 
Búin að redda hóteli. Vinkona mín fékk góð kjör og gat bætt mér í hópinn.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?