Monday, February 05, 2007

 

Stolt af syninum

Það er alveg greinilegt að Ritalínið er að hjálpa syninum. Við vorum í foreldraviðtali í morgun og drengurinn fékk 9,8 í stærðfræði. Kennarinn hafði orð á því hvað hann afkastaði miklu meira í tímum og ætti auðveldara með að einbeita sér. Allar umsagnir voru mjög góðar og á þá leið að hann hefði bætt sig mikið og færi betur eftir fyrirmælum.

Ég held að það sé ekki spurning að láta hann halda áfram á Ritalíninu (eða öðru sambærilegu) út þetta skólaár. Það er svo alltaf hægt að endurmeta stöðuna í haust og sjá hvort þörf er á áframhaldandi lyfjagjöf.

Comments:
Mikið er gott að heyra að honum gengur vel!
 
Þetta er flottur árangur og þú getur svo sannarlega verið stolt af honum. :)
 
Takk, takk. Ég er bara svo ánægð með að lyfið virðist hjálpa honum.
 
frábært, til hamingju með þetta. Best samt ef honum líður betur, nevermænd árangur...
 
Æi hvað það er frábært að heyra þetta Veiga mín. Þetta styður mig að lesa þetta að ég hafi tekið rétta ákvörðun. Strákurinn minn byrjar nefnilega á Ritalini í næstu viku þar sem hann á svo erfitt með að einbeita sér. Ég leyfi þér að fylgjast með hvernig þetta heppnast hjá okkur!
 
Ég er mjög sátt við þetta kerfi á lyfjagjöfinni. Hann tekur lyfið bara þegar hann er í skólanum, ekki í skólafríum og um helgar.
 
til hamingju með drenginn! það hlaut að vera að á bak við óróleikan byggi snirlingur eins og mamma sín :)
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?