Monday, November 13, 2006

 

Svaðilför

Dóttirin er á leiðinni í skólabúðir að Laugum í Sælingsdal. Rútan lagði af stað klukkan níu í morgun og um hádegi var hún í Borgarfirði. Það er víst brjálað veður og flest börnin dauðskelkuð, enda ekki mjög vön svona veðri.

Ég verð rólegri þegar hún kemst á leiðarenda. Það er að vísu ekkert GSM samband þangað, en vonandi sendir skólinn frá sér einhverja tilkynningu.

Comments:
Þau komust heil á húfi, eftir 6 tíma svaðilför, til Lauga.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?