Saturday, October 08, 2005

 

Desperate Housewives

Ég get ekki neitað því að ég er mjög hrifin af þessum þáttum, enda ber titill bloggsins míns þess merki. Við Hildigunnur eigum eitt sameiginlegt. Við getum hvorugar beðið eftir því að "þátturinn okkar", sé sýndur í sjónvarpinu. Þess vegna fór ég krókaleiðir og útvegaði mér tvo fyrstu þættina í næstu seríu. Ég varð ekki fyrir vonbrigðum. Í lok seinni þáttarins var sýnt úr næsta þætti og nú er ég að farast úr óþolinmæði.

Comments:
Ég rakst á umræður um næstu seríu en flýtti mér að loka síðunni svo ég skemmdi ekki fyrir mér spennuna...
 
sýndur á morgun í Meríku, ætti að koma í hús hér á mánudag...

ég horfi reyndar ekki á þessa en maðurinn og unglingurinn bíða spennt!
 
Ég átti við að ég er jafn heilluð af þessum þáttum eins og þú ert af Lost þáttunum.
 
já, æ, ég skildi þig alveg. Bara að ítreka að desperötuðu hjásvæfurnar eru líka sóttar hingað inn á heimilið. Náðum í nýjasta í gær, hann bíður gláps í kvöld.
 
Oh ég þarf að fara að útvega mér hann.
 
Hey, fær maður ekki að kíkja á þá? Lille sis
 
Hey! Fær maður ekki að kíkja á þættina? Lille sis
 
Alltaf velkomin í heimsókn.
 
Er komin með fjóra þætti, sótti þann fjórða í gær.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?