Friday, September 16, 2005

 

Krónur og evrur

Þá er komið að því að maður þarf að gera sér ferð í bankann að versla gjaldeyrir. Ég er orðin svo spennt fyrir utanlandsferðinni. Dagskráin er þéttskipuð, boð í tvö sendiráð og fullt af tónleikum. Og svo auðvitað nóg af sprelli líka.

Ég er búin að skoða mikið af síðum, til að fræðast um Helsinki og Tallinn. Ég er meira að segja næstum búin að læra fyrsta orðið mitt í finnsku: Juustohampurilainen. Finnskumælandi vinur minn kenndi mér þetta orð og fannst þetta greinilega nauðsynlegt, þegar maður ferðast til Finnlands.

Comments:
Nei, nei, þú færð nú örugglega eitthvað betra en hamborgara í Finnlandi, er það ekki?
 
HEHEHE alveg örugglega. Mér fannst það bara svo sniðugt að þetta var fyrsta orðið sem vinur minn vildi kenna mér.

Ég skaut því á hann að þessi kunnátta myndi fleyta mér langt ;)
 
Góða ferð Veiga mín og skemmtu þér ROSALEGA vel.
 
oohh, mig langar til Finnlands. Býður ekki kórinn tónskáldunum sínum með? ;-)

góða ferð annars, hlakka til að heyra ferðasöguna.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?