Wednesday, March 02, 2005

 

Pælingar

Ég hef mikið verið að velta fyrir mér götunöfnum undanfarið. Mér finnst stundum vanta meiri fjölbreytileika í nafnaval á nýjum hverfum. Mörg hverfi hafa sömu götuheiti eða mjög keimlík, eins og þessu hafa bara verið rimpað af á sem styðstum tíma. Hversu mikil vinna er eiginlega lögð í þetta? Er til nefnd á fullum launum sem situr sveitt yfir þessu allan daginn?

Það eru til mörg skemmtilega snúin götuheiti og svo önnur sem eru alveg út í hróa. Það er td. til Ægissíða á Hellu (er einhver sjór þar nálægt?) og svo er á Neskaupstað til gata sem heitir Bakkabakki (var ekki bara Bakki einfaldara). Einnig er líka til stutt gata í Keflavík sem heitir því fína nafni Frekjan.

Svona getur maður endalaust haldið áfram, eða hvað?.

Comments:
teldu hvað eru til margar hafnarbrautir og lækjargötur á landinu...
 
Einmitt. Þær finnast alls staðar.
 
Mér finnst Álfkonuhvarf samt alveg geggjað nafn. Þegar ég heyrði þetta götunafn fyrst hugsaði ég: ÞARNA verð ég að eiga heima. Í götunni þar sem álfkonan hvarf. :)
 
Vertu velkomin þangað. Þá yrðum við nágrannar.;)
 
Já eða Bloggheimar og Netheimar og jafnvel Internetstræti
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?