Tuesday, March 15, 2005

 

Mánudagur

Gærdagurinn var með þeim verri mánudögum sem ég hef lifað. Hann var bara ergilegur frá upphafi til enda. Börnin voru óþekkari, vinnan var leiðinlegri og allt í þeim dúr. Ég mætti meira að segja á kóræfingu í gærkvöldi, tilbúin í að fá mína venjulegu upplyftingu, en þá var Sigrún í pirruðu skapi og allt gekk á afturfótunum. Hún er að breyta uppsetningu á einu laginu, og ég er bara alls ekki sátt við að þetta fallega lag sé flutt svona. Mér finnst það alveg tapa sjarma. EN hún verður víst að fá að ráða því.

ARGGGG. Ég var mjög fegin þegar dagurinn var loksins búin og ég lagðist á koddann.

Comments:
Ég var einmitt eitthvað sérstaklega pirruð í gær. Kannski eitthvað í loftinu?
 
Ég held að það hljóti bara að vera. Allir eitthvað pirraðir.
 
Jamm, ég líka. Pirr pirr. :(
 
ég var pirruð í dag en komin yfir það núna. Páskafrí, páskafrí here I come...
 
hvaða lag var þetta annars sem var verið að misþyrma? (þekki svo mikið af þessu, sko!)
 
Það er varla að ég þori að segja þér frá því. Það er Ástarraunir eða "Einum unni ég manninum" sem þú útsettir svo fallega.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?