Friday, November 23, 2007

 

Stúfur fékk skoðun

Ég fór með bílinn í skoðun í morgun. Stúfur skrölti í gegn í bókstaflegri merkingu, eitthvað skrölthljóð í honum sem líkist því mest að það sé eitthvað laust undir honum. Ég var mjög fegin, enda átti ég alveg eins von á því að fá ekki skoðun á bílinn.

Það er sonur minn sem á heiður af þessu nafni á bílnum. Hann vildi endilega gefa bílnum nafn, eftir að ég sagði honum sögur af Patta, fyrsta bílnum mínum. Sá bíll var eitthvað svo pattaralegur. Bíllinn okkar er lítill og rauður og þá fannst syni mínum aðeins eitt nafn koma til greina. Hann heitir því í höfuðið á minnsta jólasveininum. Mjög viðeigandi.

Comments:
jæja núna er ég búin að lesa milljón sinnum um hann stúf sem fór í skoðun - nýtt blogg takk :)
 
Allt í lagi Elín mín, kippi því í lag.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?