Tuesday, January 09, 2007

 

Fyrsti í Ritalín

Ég get ekki neitað því að ég var orðin mjög stressuð í morgun, þegar kom að því að gefa syninum fyrstu töfluna. Ég var eiginlega farin að efast um að ég væri að gera rétt og kannski gæti hann alveg plummað sig sjálfur. En eins og við ákváðum, þá verður þetta reynt í einn mánuð og svo tekin ákvörðun um framhaldið.

Hann var svo sætur, blessaður, þegar hann var nýbúinn að kyngja töflunni og sagði mér að þetta væri bara allt annað líf. Hann gæti alveg setið kyrr núna.

Comments:
æi, vonandi að þetta gangi vel hjá honum :-)
 
Já, segi það sama. Vonandi gengur þetta vel hjá honum og ykkur báðum. :)
 
Gott að hann er jákvæður. Gangi ykkur vel með þetta allt saman!
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?