Tuesday, August 30, 2005

 

Viltu gefa mér 5 milljónir?

Ég veit að ég er orðin létt-geggjuð, en ég sá draumaíbúðina á Mbl.is. Mig vantar bara ca. 5 milljónir á milli. Ég er búin að búa tæpa 5 mánuði í nýju íbúðinni minni og er ennþá hálf rótlaus. Börnin eru heldur ekki að festa rætur og okkur langar öllum að flytja aftur í gamla hverfið.

Getur verið að ég sé í einhverri "miðaldrarkreppu"? Ég virðist ekki vera sátt við neitt þessa stundina.

Comments:
Þetta tekur tíma. Ég er búin að búa í átta mánuði í nýju íbúðinni minni og ég saknaði fyrstu mánuðina "gamla" hverfisins míns. Kannski er lausnin að reyna að njóta nýja hverfisins á þess eigin forsendum. Hvað er hægt að gera þar sem var ekki hægt í gamla hverfinu? Fara í langar gönguferðir, horfa á fallegt útsýni os.frv. Ég myndi alla vega gefa þessu aðeins lengri séns. ;)
 
Þolinmæði hefur aldrei verið mín sterkasta hlið.;)
 
Já bíddu... ég er einmitt með rúmar 5 millur í rassvasanum.. nó prob.

En annars þá myndi ég nú gefa þessu aðeins lengri tíma. Home is where the heart is..
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?