Thursday, February 17, 2005

 

Soldið stressuð

Ég á að halda smá fyrirlestur í kvöld um nýtt forvarnarverkefni sem við erum að fara í gang með í skólanum. Ég er ekki vön að tala fyrir framan fólk, svo það er ekki laust við að ég finni fyrir fiðringi í maganum. Ég veit að ég lifi þetta alveg af, en ég verð líka mjög glöð þegar þetta er búið.

Comments:
toj toj :-)
 
Skoh.. líttu á björtu hliðarnar. Þú gætir verið að prómótera eitthvað ógeðslega hrikalega vandræðalegt, eins og tásvepp í kringum endaþarm... Ímyndaðu þér hvað þú værir stressuð þá :D... Þú rústar essu ;)
 
Ég vildi óska að ég hefði lesið þetta svar áður en ég þurfti að flytja kynninguna. Það hefði hjálpað mér mikið. EN ég lifði þetta af. Tungan var að vísu tvöföld og sum orðin virtust koma út afturábak, en það tókst.
 
Post a Comment

<< Home

This page is powered by Blogger. Isn't yours?